Unnið verður með stöðu karla og kvenna í nútímasamfélagi og fjallað um gagnrýna hugsun og nemandinn æfður í að temja sér hana. Fjallað verður um jafnrétti í tengslum við mismun kynjanna og samskipti, sjálfsmynd og sjálfsvitund ásamt almennu heilbrigði.
HBFR1ÉG02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi stöðu karla og kvenna í nútímasamfélagi
mikilvægi jafnréttis hvarvetna í þjóðfélaginu
gagnrýninni hugsun og merkingu hennar fyrir einstaklinginn
mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar
mikilvægi þess að öðlast færni í félagslegum samskiptum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita gagnrýninni hugsun, sérstaklega gagnvart hinum ýmsu miðlum
skoða jafnrétti í þjóðfélaginu
skilja hvað er rétt og rangt og geta tekið ákvarðanir í samræmi við það
tala um tilfinningar og reynslu í félagslegum samskiptum við bæði kynin
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
horfa á mismunandi þjóðfélagshópa út frá jafnrétti og mannréttindum
hafa jákvætt viðhorf gagnvart mismunandi þjóðfélagshópum óháð stöðu þeirra
skynja eigin tilfinningar og þarfir og njóta sín í samvistum við aðra
taka upplýstar ákvarðanir
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.