Heilbrigðisfræði með áherslu á sjálfsmynd og samskipti
HBFR1SS01(AV)
19
heilbrigðisfræði
Sjálfsmynd og samskipti
Samþykkt af skóla
1
1
AV
Unnið er markvisst að því að nemandinn öðlist leikni við eflingu sjálfsmyndar og sjálfsvitundar. Unnið verður með samskipti, eigin hegðun og framkomu og hversu mikilvægt það er að geta átt ábyrg og farsæl samskipti við aðra.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar og sjálfsvitundar
mikilvægi þess að vera sáttur við sjálfan sig
mismunandi leiðum í samskiptum og samstarfi
mikilvægi hollra lífshátta og hreyfingar fyrir sjálfsmyndina
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja sjálfan sig
styrkja sjálfsmynd sína
eiga góð samskipti við mismunandi einstaklinga í mismunandi aðstæðum
fara eftir ráðleggingum um holla lífshætti, fæðuval og hreyfingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þekkja eigin sjálfsmynd og vera sáttur við hana
þekkja eigin líðan, einkenni vanlíðunar og geta leitað sér hjálpar
vera umburðarlyndur gagnvart mismunandi einstaklingum
lifa hollu og heilsusamlegu lífi með tilliti til mataræðis og hreyfingar
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.