Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507978738.03

    Náms- og starfskynning
    NÁSS1ST06
    4
    Náms- og starfsfræðsla
    kynning á verknámsgreinum VMA, starfsbraut
    Samþykkt af skóla
    1
    6
    AV
    Í áfanganum gefst nemandanum kostur á að kynnast þeim verknámsmöguleikum sem eru í boði hverju sinni í skólanum. Nemandinn fæst við fjölbreytt verkefni og kynnist vinnubrögðum sem nýtast honum í daglegu lífi s.s. líkamsbeitingu. Að auki kynnist hann starfsgreinum og atvinnumöguleikum sem bjóðast að loknu starfsnámi í framhaldsskóla. Nemandinn fer á milli verklegra deilda í skólanum og tekst á við margvísleg verkefni tengd hverri faggrein fyrir sig. Mikið er lagt upp úr öryggi á vinnustöðum og umgengni. Leitast er við að nemandinn finni styrkleika sína og öðlist sjálfstraust til að sinna ólíkum verkefnum og finni áhugasvið sitt í gegnum fjölbreytt nám.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • námsleiðum innan VMA og þeim möguleikum sem standa til boða í verk- og/eða starfsnámi
    • helstu hugtökum og viðfangsefnum hinna ýmsu verk- og starfsgreina
    • grunnatriðum sem snúa að öryggi á vinnustað
    • atvinnumöguleikum að loknu verk- og/eða starfsnámi
    • réttum vinnustellingum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita ýmsum verkfærum við vinnu í ólíkum verklegum greinum
    • beita líkamanum rétt við mismunandi aðstæður
    • bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum í því vinnuumhverfi sem hann er staddur í hverju sinni
    • greina styrkleika sína og tengja áhugasvið sitt við nám
    • setja sig í spor annarra, sýna umburðarlyndi og samhygð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • stunda árangursríkt nám á framhaldskólastigi og taka ábyrgð á eigin námi
    • taka afstöðu til áframhaldandi náms við skólann, verklegs eða bóklegs
    • vera ábyrgur og ganga vel um vinnustaðinn m.t.t. öryggis og frágangs
    Í hverri lotu er lagt mat á frammistöðu nemenda og lokaeinkunn í áfanganum er meðaltal þeirra einkunna. Kennari í hverri lotu skýrir námsmatið út fyrir nemendum