Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1507988499.79

    Stærðfræði með áherslu á tímahugtök
    STÆF1TÍ02
    1
    Stærðfræði
    tími og rúm
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    AV
    Í áfanganum er lögð áhersla á tímahugtök og unnið verður með þau á fjölbreyttan hátt, s.s. í gegnum verkefnavinnu, veraldarvefinn og verklegar æfingar, s.s. fara í strætó. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengum tímahugtökum
    • vikudögum
    • mánuðum
    • dagsetningum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa í og/eða nýta sér dagatal
    • átta sig á klukkunni og hvað tímanum líður
    • breyta dagsetningu úr rituðu máli yfir í tölustafi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýtt sér tímahugtök í daglegu lífi
    • áttað sig á árstíðum og þeim mánuðum sem tilheyra hverri árstíð fyrir sig
    • nýtt sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. dagatali
    • verið stundvís
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.