Í áfanganum er unnið með útreikninga og stærðfræðileg hugtök sem nýtast nemendum í daglegu lífi. Dæmi um viðfangsefni eru tölur, samlagning, frádráttur, margföldun og deiling. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðuatriðum í reikningsaðgerðum
mikilvægi stærðfræðinnar í daglegu lífi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota vasareikni
nota algeng stærðfræðitákn
leysa úr stærðfræðilegum upplýsingum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
fylgja fyrirmælum sem gefin eru
beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.