Í áfanganum er lögð áhersla á prósentureikning með fjölbreyttum nálgunum. Það verður m.a. gert með mismunandi verkefnavinnu, vettvangsferðum í verslanir, veraldarvefurinn verður notaður ásamt tilboðsbæklingum og spilum. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnatriðum í prósentureikningi
tölum og reikniaðgerðum
forgangsröðun aðgerða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita prósentureikningi í einföldum dæmum
temja sér gagnrýna en um leið skapandi hugsun
leysa úr stærðfræðilegum prósentuupplýsingum
tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja fram tölulegar upplýsingar
skrá lausnir sínar á skipulagðan hátt
reikna afslátt á vörum og/eða þjónustu
beita skipulögðum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.