Í þessum áfanga fær nemandinn tækifæri til að kynna sér mismunandi vinnustaði. Við val á vinnustöðum verður tekið mið af óskum nemandans. Starfsnámið verður skipulagt í samráði við vinnuveitendur og hefur kennari eða annar starfsmaður skólans umsjón með starfsnáminu. Nemandinn vinnur eftir vinnulistum sem taka mið af aðstæðum hverju sinni.
Að hafa lokið sem svarar a.m.k. fjögurra anna námi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölbreyttum vinnustöðum
undirstöðuþáttum þess vinnustaðar sem hann kýs að starfa á í sínu starfsnámi
þeim áhöldum, tækjum og tólum sem ætlast er til að viðkomandi nýti sér eða meðhöndli úti á vettvangi
hættum sem geta verið í starfsumhverfinu
atvinnutækifærum og fyrirtækjum í nærsamfélaginu
þeim atriðum sem taka ber tillit til við starfsval
tilgangi starfa og mikilvægi þeirra í tengslum við önnur störf
eigin styrkleikum og mikilvægi góðra samskipta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
vinna sjálfstætt eða undir leiðsögn
fylgja fyrirmælum
fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
fylgja samskiptareglum á vinnustað
koma sér til og frá vinnu á réttum tímum
bera ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum
taka þátt í samræðum, bera virðingu fyrir skoðunum annarra og sýna umburðarlyndi
meta hættur í vinnuumhverfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í atvinnulífinu
biðja um aðstoð ef þess þarf
tilheyra starfsmannahópi
vera ábyrgur starfsmaður
vera hæfur til samvinnu
nýta sér hlífðarbúnað og hjálpartæki á vinnustað og forðast hættur
þekkja viðeigandi hegðun í vettvangsheimsóknum og/eða í starfsnámi
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.