Saga með áherslu á hörmungar og stríð í veröldinni
SAGA1ÁH03
24
saga
hörmungar og stríð frá 20. öld til dagsins í dag
Samþykkt af skóla
1
3
AV
Áfanginn miðar að því að nemendur fræðist um stórstyrjaldir og hörmungar samfara þeim á 20. öld til dagsins í dag og hvernig þær hafa haft áhrif á heimsbyggðina. Hvernig valdamiklar persónur hafa haft áhrif til góðs eða ills til dæmis hvað varðar lýðræði, mannréttindi og jafnrétti í heiminum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
afleiðingum styrjalda og hörmunga á búsetuskilyrði á ákveðnum svæðum
áhrifum ýmissa atburða á lýðræði og mannréttindi á ákveðnum svæðum
áhrifum ýmissa atburða á jafnrétti og menntun á ákveðnum svæðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér bókasöfn og tækni í upplýsingaleit
tjáð skoðanir sínar, hlusta á og ígrunda skoðanir annarra
eiga jákvæð samskipti og samstarf við aðra
nýta sér fjölbreyttari orðaforða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tileinkað sér jákvætt hugarfar og víðsýni
bera virðingu fyrir mismunandi lífsgildum, mannréttindum og jafnrétti
auka trú á eigin getu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.