Áfanginn miðar að því að nemenendur fræðist um landafundi, uppfinningar og ýmsa atburði sem hafa haft mikil áhrif á heimsbyggðina í tímans rás. Fjallað verður m.a. um landkönnuði, tunglfara, uppfinningamenn og fleira.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig ýmsar uppfinningar og landafundir hafa opnað gáttir heimsins
hvernig ný þekking og framfarir hafa áhrif á söguna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér bókasöfn og tækni í upplýsingaleit
tjáð skoðanir sínar, hlusta á og ígrunda skoðanir annarra
eiga jákvæð samskipti og samstarf við aðra
nýta sér fjölbreyttari orðaforða
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tileinka sér jákvætt hugarfar og víðsýni
auka trú á eigin getu
tengja þekkingu sína við daglegt líf
bera virðingu fyrir mismunandi lífsgildum, mannréttindum og jafnrétti
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.