Áfanganum er ætlað að byggja ofan á grunnþekkingu í efnafræði. Fjallað verður um efnajafnvægi og orkubreytingar efnahvarfa, jafnvægisfasta efnahvarfa og lögmál Le Chatelier's. Mjög ítarlega er farið í sýru- og basalausnir, títrun, búfferlausnir og annað sem viðkemur sýrum og bösum s.s. hvörf málma við sýrur. Haldið verður áfram með leysni salta og leysnimargfeldi (Ksp). Einnig verður farið í rafefnafræði, Galvaníhlöð og aðrar rafhlöður og áhersla lögð útreikninga sem byggist á rafeindaflutningi og staðalafoxunarspennu, hálfhvarfa, Nernst jafna og rafgreiningu. Mikil og rík áhersla er lögð á dæmareikning þar sem ofangreindir efnisþættir eru fléttaðir saman. Áhersla er lögð á framkvæmd verklegra æfinga og skýrslugerð sem tengist efninu.
EFNA2AA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orkubreytingum í efnahvörfum, varma, fríorkubreytingu, óreiðu, stöðuorku og vermi
sjálfgengum efnahvörfum og ákvarðað hraða efnahvarfa
áhrifum virkjunarorku á sjálfgengni efnahvarfa
áhrifum hvata, hita, efnismagns og þrýstings á jafnvægi efnahvarfa
umhverfum efnahvörfum
útvermum og innvermum efnahvörfum
jafnvægislögmálinu og lögmáli Le Chateliers
myndun salta og ákvarðað leysnimargfeldi þeirra
myndun botnfalla og spáð fyrir þeim með reikningum
áhrifum samskonar jóna á jafnvægi fellingarhvarfa
sýrum og bösum og pH hugtakinu
sjálfsjónun vatns, sýru og basa klofningsföstum og hagnýtingu þeirra til að reikna sýrustig
muninum á af römmum og veikum lausnum af sýrum og bösum
sýru og basapörum í vatnslausnum
búfferlausnum og sýrustigi saltlausna
sýru basa títrun og litvísum
spennuröðinni
galvaníhlöðum
Nernst jöfnunni
rafgreiningu
tæringu og tæringarvörnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina milli ólíkra efnafræðihugtaka
beita mælistærðum, einingum og markverðum tölustöfum
skilgreina ofangreind hugtök
reikna dæmi tengd ofangreindum hugtökum í efnafræði
nota efnafræðihugtök
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á og rökstyðja hvaða reikniaðferðir eiga við hverju sinni við útreikninga í efnafræði
beita skipulegum aðferðum við útreikning lausna og setja fram niðurstöður sínar með óvissu og markverðum hætti
hagnýta sér þekkinguna við framkvæmd verklegra æfinga í efnafræði.
skilja mikilvægi efnafræðinnar í raunvísindum
geta unnið af öryggi og sjálfstæði og beitt röksemdarfærslu á efni tengd grunnefnafræði
setja fram rannsóknarniðurstöður og rita skýrslur
stunda áframhaldandi nám í efnafræði
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.