Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1508317469.92

    Byrjunaráfangi í eðlisfræði
    EÐLI1AF04(MA)
    6
    eðlisfræði
    aflfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    MA
    Áfanganum er ætlað að veita gagnlegan grunn í eðlisfræði. Meginþættir efnisins eru einvíð hreyfing, aflfræði punktmassa- og varmafræði. Rauði þráðurinn í áfanganum eru hugtökin kraftur og orka. Þannig er fjallað um þyngdarkraft og þyngdarsvið við yfirborð jarðar, fjaðurkraft og núningskrafta; ennfremur um ýmis form orkunnar svo sem vélræna orku og innri orku. Fjallað er um eitt mikilvægt varðveislulögmál eðlisfræðinnar, þ.e. lögmálið um varðveislu orkunnar. Lögð er áhersla á verklegar æfingar sem tengjast efninu.
    STÆR2RÚ06
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mælistærðum, einingum og óvissu
    • SI-einingakerfinu, hreyfingu eftir beinni línu sambandi færslu, hraða og jafnrar hröðunar við línulega hreyfingu
    • kröftum
    • kraftlögmálum Newtons
    • þyngd, núningi og fjaðurkrafti
    • skriðorku, stöðuorku í þyngdarsviði og spennuorku
    • vinnulögmálinu
    • orkulögmálinu
    • vinnu og orkuvarðveislu
    • sambandi vinnu krafts og afls hans
    • þrýstingi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita mælistærðum, einingum og óvissu í eðlisfræði
    • útskýra hreyfingu eftir beinni línu
    • beita 2. lögmáli Newtons við lausn dæma
    • beita vinnulögmálinu við lausn verkefna
    • beita orkulögmálinu við lausn einfaldra verkefna
    • reikna út vinnu krafts og afl
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta óvissu við mælingar og fara með óvissu við samlagningu/frádrátt og margföldun/deilingu
    • setja fram niðurstöður útreikninga með óvissu og réttum fjölda markverðra stafa
    • beita kraftlögmáli Newtons til að álykta um samband hröðunar hlutar og krafta sem á hann verka
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa verkefni úr þeim efnisþáttum sem teknir eru fyrir
    • gera verklegar tilraunir úr efninu og skrá niðurstöður sínar skipulega og vinna úr þeim
    • geta unnið af öryggi og sjálfstæði og beitt röksemdafærslu á efnisatriði tengd eðlisfræði
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.