Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1508686715.82

    Listir með áherslu á leiklist og myndbandsgerð
    LEMY1TL02
    1
    Listir með áherslu á leiklist og myndbandsgerð
    Tjáning í gegnum leiklist og myndbandsgerð
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    AV
    Í áfanganum þjálfast nemendur í undirstöðuatriðum leiklistar svo sem í framsögn og tjáningu. Farið verður í uppbyggingu handrita og handritsgerðar fyrir stuttmyndir. Nemendur fá leiðsögn um myndatöku, hljóðupptöku, leikmynd, búninga og klippivinnu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að læra texta
    • mikilvægi hlustunar
    • að smekkur manna er misjafn
    • mikilvægi tjáningar og framsagnar
    • hugtakinu stuttmynd og ferlinu við gerð hennar
    • tæknivinnu að baki stuttmynd t.d. handritsgerð
    • geta upplifað fordómalaust t.d. tóndæmi, leikverk og kvikmyndir
    • geta tekið þátt í umræðum, myndað sér skoðun og tjáð hana
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • koma skoðunum sínum á framfæri og taka þátt í umræðum
    • nýta sér styrkleik sína
    • tjá sig frjálst eða eftir leikstjórn
    • skrifa handrit
    • meðhöndla stafræna tökuvél, myndavél eða spjaldtölvur
    • ná tökum á klippiforriti og gera stuttmynd
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta nýtt sér fjölbreytta miðla til að nálgast efni
    • leika á sannfærandi hátt
    • vinna í teymi og átta sig á mikilvægi skipulagðra vinnubragða
    • gera sér grein fyrir mikilvægi skapandi hugsunar
    • vinna stuttmynd og tjá sig í gegnum hana
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.