Listgreinakynning með áherslu á sköpun og gagnrýna hugsun
LISK1AÚ02
1
Listir á starfsbraut
Kynning á ýmsum aðferðum, útfærslum og efnisvali í listsköpun
Samþykkt af skóla
1
2
AV
Áfanginn er einstaklingsmiðaður. Markmiðið er að nemendur kynnist fjölbreyttum aðferðum sem notaðar eru við listsköpun og að þeir geti leitað fanga í ýmsum hugmyndabönkum s.s. í blöðum, bókum og á veraldarvefnum. Lögð verður áhersla á gagnrýna og skapandi hugsun með samræðum við nemendur um þeirra eigin verk og annarra.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi aðferðum við listsköpun
mismunandi áhöldum og efnivið
hvar á að leita að hugmyndum og leiðbeiningum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota viðeignadi áhöld
vinna verk með fjölbreyttum aðferðum
vinna verk úr fjölbreyttum efnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
takast sjálfstætt á við skapandi verkefni
nýta tómstundir sér til gagns og ánægju
nýta og tengja þekkingu sína við daglegt líf
sækja sér viðbótar þekkingu t.d. stök námskeið
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.