Prjón og hekl með áherslu á sjálfbærni, sköpun og velferð
PRJH1GA02
3
Prjón og hekl
grunnaðferðir
Samþykkt af skóla
1
2
AV
Áfanginn er einstaklingsmiðaður og miðar að því að nemendur læri undirstöðuatriði í prjóni og hekli, að lesa úr og nýta sér hugmyndir og uppskriftir í blöðum, bókum og á veraldarvefnum og verði sjálfbjarga með að iðka þessa gömlu heimilisiðju. Sérstök áhersla er á sköpun, velferð og sjálfbærni og að nemandinn öðlist leikni sem nýtist honum í leik og starfi. Sköpunin felst í að nemandinn læri ákveðin vinnubrögð og tækni sem hann nýtir síðan til að skapa ýmiskonar nytja- og/eða skrautmuni. Nemendur sem sækja þennan áfanga geta haft mjög misjafna getu og kunnáttu, þar af leiðandi verða verkefni þeirra mjög mismunandi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
áhöldum sem notuð eru í prjóni og hekli
garni, mismunandi tegundum og eiginleikum
mismunandi þvottameðferð á garni eftir eiginleikum þess
efnisvali, hvaða garn hentar best í tiltekna hluti
hvar á að leita að hugmyndum og leiðbeiningum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota viðeignadi áhöld
fitja upp og fella af
auka út, taka úr og sinna lokafrágangi verkefnis
geta prjónað/heklað nokkrar mismunandi aðferðir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
takast sjálfstætt á við skapandi verkefni
nýta tómstundir sér til gagns og ánægju
nýta og tengja þekkingu sína við daglegt líf
sækja sér viðbótar þekkingu t.d. stök námskeið
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.