Vinnuferli áfangans miðast við að efla sjálfsmynd nemanda við að hanna og takast á við eigin sköpun. Efnið silfurleir og eðli þess er kynnt. Nemendur eru þjálfaðir í að þróa eigin hugmynd og að vinna sjálfstætt út frá þeirri hugmynd fullgerðan skartgrip. Lögð er áhersla á sambandið á milli hugmyndar, hráefnis, tækja, aðferðar og sköpunar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
efninu silfurleir og eðli þess
hvernig má nýta sér náttúruna og bókmenntir til að auðga eigin hugmyndir
að rissa upp hugmynd og fullmóta hana áður en vinnan með leirinn hefst
að kynnast viðeigandi verkfærum og hjálpartækjum við vinnuna frá hugmynd til fullgerðs skartgrips
að þjálfa með sér þolimæði við vinnuna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með silfurleir og paste af öryggi
útfæra eigin hugmynd – teikna og útfæra
vinna með viðeigandi verkfæri við útfærslu verkefnisins
vera viðbúin því að hugmynd getur breyst frá því að hún er teiknuð á blað og þar til skartgripurinn er tilbúinn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þróa hugmynd eftir markvissu þróunarferli
setja fram hugmynd munnlega, skriflega og á myndrænan hátt
nýta sér náttúruna og eigin menningu sem uppsprettu hugmynda
nemandinn temji sér vönduð vinnubrögð
hlusta á aðra og tjá eigin skoðanir og geta nýtt sér gagnrýni á uppbyggilegan hátt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.