Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1508840691.59

    Næringarfræði, líkaminn og næring
    NÆÞJ2LN05
    1
    Næringarfræði, líkaminn og næring
    Líkaminn og næring
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur kynnist áhrifum næringar og mataræðis á líðan og heilsu einstaklinga. Þeir þekki samspil næringar og hreyfingar og geti nýtt þessa þekkingu til að bæta eigin líðan, heilsu og árangur í skóla og íþróttum. Kynntar verða ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um mataræði og næringarefni. Skoðað verður hvað liggur til grundvallar þeim ráðleggingum og hvaða ávinning hægt er að fá með því að fylgja þeim ráðleggingum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Ráðleggingum um mataræði og næringarefni fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri og hvað liggur til grundvallar þeim ráðleggingum.
    • Þekki þau áhrif sem mataræði hefur á líkamsstarfsemina og heilsufar fólks.
    • Þekki fæðuflokkana og mikilvægi hvers þeirra í mataræði auk mikilvægi fjölbreytni og góðrar samsetningar fæðunnar.
    • Þekki orkuefnin, vítamín og steinefni og viti meginvirkni hvers þeirra og viti hvað ráðlagður dagskammtur stendur fyrir, efri og neðri mörk neyslu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skoða eigið mataræði á gagnrýninn hátt og meta hvað megi betur fara og hvað sé gott.
    • Reikna út næringargildi fæðu með næringarefnatöflum og reikniforritum.
    • Finna ákjósanlegar fæðutegundir til að bæta mataræði sitt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Bæta eigið mataræði og geta sett saman ákjósanlegt mataræði fyrir sig og aðra.
    • Taka þátt í gagnrýnum umræðum um ýmsar mýtur um kosti og ókosti einstakrar fæðu eða mataræðis.
    • Tengja þekkingu sína á líkamsstarfseminni og þörfum líkamans á næringu við líðan og árangur í daglegu lífi, skóla og íþróttum svo eitthvað sé nefnt.
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.