Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509016485.89

    Hagnýt stærðfræði
    STÆR2HS05
    83
    stærðfræði
    hagnýt, stærðfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er fyrir nemendur sem eru á starfsnámsbrautum. Í áfanganum er lagður grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði. Farið verður í tölfræði, líkindareikning, gröf, hlutfalla- og prósentureikning, flatarmál og rúmmál. Áhersla er á lausn hagnýtra verkefna.
    Einkunn 5 eða hærra úr grunnskóla
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hlutfallshugtakinu
    • undirstöðuatriðum rúmfræði s.s flatarmál, rúmmáli, mælikvörðum og hlutföllum
    • undirstöðuatriðum líkindareiknings
    • undirstöðuatriðum tölfræðinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera munnlega eða skriflega grein fyrir niðurstöðum sínum og aðferðum
    • nota reiknivél sem hjálpartæki við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna
    • kunni að skipta stærðum eftir hlutföllum og geti leyst öll algeng dæmi um prósentureikning
    • vinna með lýsandi tölfræði s.s. miðsækni og tíðni
    • vinna með hugtakið líkindi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
    • beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum og geta útskýrt aðferðir sínar
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta unnið með þau
    • geta greint og hagnýtt upplýsingar á sviði stærðfræði sem birtast m.a. í fjölmiðlum
    • beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
    Námsmatið er samkvæmt ákvörðun kennara.