Lögð er áhersla á að nemandi geti unnið sjálfstætt að viðgerð, samsetningu og uppsetningu rafeindabúnaðar.
Geti gert sér grein fyrir hvort bilun sé hugbúnaðar eða vélbúnaðar eðlis.
Nemandi sýni leikni í starfi og hæfni í beitingu mælitækja og verkfæra.
Nemandi læri sjálfstæð vinnubrögð, mikilvægi góðrar framkomu og geti aðstoðað og unnið með og ráðlagt viðskiptavinum.
Starfsþjálfun rafeindavirkjun 2
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lestri rásateikninga
tengingu og frágang ýmiskonar rafeindabúnaðar
notkun mælitækja við bilanaleit
tengingu rafeindabúnaðar við stjórn eða jaðarbúnað
virkni þeirra tækja sem hann vinnur við
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita rökhugsun við bilanagreiningu
vinna sjálfstætt á vinnustað og forgangsraða verkþáttum
leiðbeina viðskiptavinum um val og staðsetningu rafbúnaðar
veita viðskiptavinum hámarks þjónustu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt við bilanagreiningu og lagfæringar
finna bilanir í rafeindabúnaði og gert við á faglegan og ábyrgan hátt.
meta þörf á hýsingu rafeindabúnaðar gagnvart ytri aðstæðum