Í þessum áfanga kynnast nemendur grundvallaratriðum viðhaldsstjórnunar, gæða- og viðhaldskerfa og öryggisstjórnunarkerfa. Þeir öðlast haldgóða þekkingu í viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum. Þeir læra að setja upp gæðahandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og fyrirbyggjandi viðhalds. Nemendur öðlist þekkingu og skilning á gildi gæðakerfa og átt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað, setja upp einfalt gæðakerfi á grunni viðhaldsstjórnunar, og setja upp verkþáttarit, reikna út heildar verktíma og finna krítísku línuna (cpm). Þeir læri að tileinka sér kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfa að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa.
EFNM1MT05, VÉLS1AA05 og VÉLS1AB07
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hlutverki, ábyrgð, starfssviði og störfum vélstjóra á stærri skipum
hlutverki og starfsháttum þeirra sem hafa með höndum eftirlit með skipum og varnir gegn mengun sjávar og þeim reglum sem fjalla um eftirlit með skipum og mannvirkjum á landi.
uppbyggingu og markmiðum mismunandi viðhaldskerfa og viðhaldsstjórnunar.
tilgangi, notkun og uppbyggingu viðhaldsforrita fyrir vélbúnað.
bilanaviðhaldi, spáviðhald tímastýrt viðhald og viðhald byggt á ástandsskoðun
helstu tækjum til ástandsskoðana og fyrir byggjandi viðhalds eins og titrings-, þykktar-, og útleiðslumæla.
brotsárum málma og „NDT“ prófunum
uppbyggingu og markmiðum verkþáttarita,(cpm)
grundvallarhugtökum gæðastjórnunar og gæðavottunar
gæðakerfum, gæðahandbókum og gæðavottun fyrirtækja
öryggisstjórnunarkerfum, þ.m.t. ISM kóðans og þeim kröfum sem hann gerir til vélstjóra
helstu aðferðum við tæringavarnir í skipum og á hverju þær byggja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útskýra hvað er átt er við með viðhaldsstjórnun, gæðastjórnun og öryggisstjórnunarkerfum.
setja upp gæðastjórnunarhandbók og gera viðhaldsáætlanir vegna gæðaeftirlits og viðhalds.
setja upp verkþáttarit, reikna út heildar verktíma og finna krítísku línuna.
útskýra kröfur alþjóðasamþykkta um öryggisstjórnunarkerfi að því er lýtur að starfsskipulagi í vélarúmi skipa.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í skipulögðu gæðastarfi á vinnustað.
taka þátt í að setja upp og skipuleggja viðhalds- og öryggiskerfi um borð í skipum.