Áfanginn fjallar um lífeðlisfræðilegt hlutverk næringarefnanna, skortseinkenni og hvernig hægt er að koma í veg fyrir skort. Fjallað verður um sérfæði á sjúkra- og heilbrigðisstofnunum með tilliti til lækninga. Samband fæðis og sjúkdóma skoðuð og tengsl næringar og heilsu. Fjallað er um mismunandi næringarstefnur sem eru í gangi hverju sinni.
LÍFF2NÆ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lífeðlisfræðilegu hlutverki næringarefnanna, hver eru skortseinkenni þeirra og hvernig hægt er að koma í veg fyrir þau
mismunandi gerðum sérfæðis á sjúkra- og heilbrigðisstofnunum landsins með tilliti til lækninga
sambandi fæðis og sjúkdóma
ólíkum næringarstefnum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota hugtök áfangans sem hann hefur öðlast þekkingu á í réttu samhengi og á rökréttan hátt
reikna næringargildi máltíða
setja saman máltíðir með tilliti til sérfæðis
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta næringargildi fæðu
meta hvaða breytinga er þörf á almennu fæði til að sérfæði innihaldi lífsnauðsynleg næringarefni
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.