Í áfanganum fást nemendur við matreiðsluaðferðir heita og kalda eldhússins. Læra að velja viðeigandi matreiðsluaðferð fyrir tiltekið hráefni og færa rök fyrir vali sínu. Nemendur reikna út hráefniskostnað, rýrnun hráefnis, áætla magn og sjá um innkaup fyrir tiltekin verkefni. Forgangsraða verkþáttum og skipuleggja vinnuferla með tilliti til fyrirliggjandi verkefna
AFMA1HR04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
útreikningi á hráefniskostnaði, rýrnun hráefnis, áætlun um magn og innkaup
skipulagi og forgangsröðun verkþátta
undirstöðu matreiðsluaðferðum og beitingu þeirra
aðferðum kalda eldhússins. Hér er átt við: Helstu farstegundir, kæfur, marineringu á kjöti og fiski, kjöt, fisk- og grænmetishlaup, heit- og kaldreykingu, súrsun og söltun (pækilsöltun og þurrsöltun)
sígildum réttum og geta sett þá í samhengi við nútíma framsetningu og lýðheilsu
áherslum sem gilda um alþjóðlega matargerð og aðferðafræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna út hráefniskostnað, rýrnun, áætla magn og annast um innkaup
forgangsraða verkefnum og sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnu sinni
lesa texta sem inniheldur faglegar upplýsingar, vinna úr þeim með mismunandi hætti
kynna niðurstöður sínar af umburðalyndi og skilningi á viðhorfum annarra
skrifa stuttan texta um faglegt efni og færa rök fyrir máli sínu bæði munnlega og skriflega
afla faglegra upplýsinga og greina á milli áreiðanleika þeirra og fræðilegs gildis
nota heimilidir sem skýra eigin röksemdafærslu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
reikna og áætla hráefni og magn fyrir tiltekið verkefni
skipuleggja og forgangsraða verkþáttum á skilvirkan hátt
tengja saman hráefni, framsetningu og sígildar matreiðsluaðferðir
meta eigin verk og annarra út frá skilgreindum forsendum fyrirliggjandi verkefna
útfæra nýjar hugmyndir sem byggjast á sígildri matreiðslu
tjá sig á skapandi og ábyrgan hátt um fagleg málefni og rökstyðja niðurstöður sínar
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.