Í áfanganum er farið í matseðlagerð fyrir almennt fæði og sérfæði í almennum mötuneytum og að tengja saman matseðil fyrir almennt fæði og sérfæði. Einnig matseðla fyrir mismunandi hópa s.s. börn, unglinga, aldraða, íþróttafólk og einstaklinga frá mismunandi menningarheimum
Lögð er áhersla á sérstöðu íslenskra afurða og val á þeim með hliðsjón að íslenskum matarháttum.
NÆRS3SN05 og MASF2MF02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
matseðlagerð fyrir almennt fæði og sérfæði
hvernig menning þjóða og trúarbrögð tengjast matarhefð
að greina sérstöðu Íslands með hliðsjón að matargerð, hreinleika afurða og gæða
notkun hugbúnaðar til útreikninga á næringargildi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
semja matseðla fyrir almennt fæði og sérfæði
velja hráefni með tilliti til uppskerutíma og næringargildis
tengja saman matarhefðir, trúarbrögð og menningu ólíkra hópa við matseðlagerð
nota hugbúnað til útreikninga á næringargildi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita faglegri gagnrýni við gerð og frágang matseðla fyrir almennt fæði og sérfæði
útbúa matseðil þar sem tekið er tillit til ólíkra trúarbragða og menningar þegar það á við
rökstyðja val sitt á hráefni með áherslu á næringargildi og íslenska matarhefð
til að tjá sig á skapandi og ábyrgan hátt um íslenska matarhætti
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.