Að loknu námi þekkja nemendur alla hluti vökvakerfa og hlutverk þeirra. Nemendur eru færir um að lesa vökvateikningar og vinna eftir þeim. Nemendur geri sér grein fyrir uppbyggingu vökvakerfa og hlutverk einstakra eininga og eru færir um að afla sér upplýsingar í handbókum. Nemendur eru færir um að lesa vökvakerfisteikningar og vinna eftir þeim. Nemendur geri sér grein fyrir uppbyggingu vökvakerfa og hlutverki einstakra eininga og eru færir um að afla sér upplýsinga í handbókum. Nemendur eru færir um að lesa úr töflum og línuritum ýmsar upplýsingar sem tengjast vökvakerfum og geta gert ýmsa útreikninga. Nemendur hljóta þjálfun í uppsetningu einfaldra vökvakerfa.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
táknum og teiknistöðlum fyrir vökvakerfi
einingum vökvakerfa
opnum og lokuðum vökvakerfum eðliseiginleikum og segju vökva
förgun og endurvinnslu vökva
lofttæmingu vökvakerfa
ýmsum útreikningum, t.d. streymishraða, orkutapi, lagnastærðum og stærð vökvageymis miðað við búnað
reikningi afls, vægis og taps í vökvakerfum
reikningi dælurýmdar og afkastagetu
reikningi þensluáhrifa vegna bitabreytinga
festingum og millibili þeirra
öryggiskröfum fyrir lagnakerfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta hreinlæti í vinnu sem tengjast vökvakerfum
lesa teikningar og tákn vökvakerfa
reikna út ýmis verkefni um stærðargreiningu út frá fyrir fram ákveðnum forsetum og ráðlögðum gildum
nota töflur, línurit og fræðilegar upplýsingar sem tengjast vökvakerfum
meta eiginleika glussa sem notaður er í vökvakerfum
setja upp einföld vökvakerfi
nota handverkfæri sem tengjast vökvakerfum
kóna og beygja rör
festa rör á réttan hátt
draga í gegnum rör
meta frágang á vökvalögnum
lesa handbækur og upplýsingar sem tengjast vinnu við vökvakerfi
lesa handbækur og upplýsingar sem tengjast vinnu við vökvakerfi
velja vökvakerfiseiningar miðað við forsemdur
velja rör miðað við forsemdur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa teikningar sem tengjast vökvakerfum og virkni einstakra eininga
reikna út afl, vægi og tap í vökvakerfum
meta og reikna stærð lagna út frá ráðlögðum gildum og reynslutölum
reikna rýmd og afkastagetu dæla og mótora
finna upplýsingar og meta nýtni í dælum og mótorum
meta lagnakerfi miðað við öryggiskröfur
meta þensluáhrif vegna hitabreytinga
meta hvort uppgefnar stærðir á lögnum séu réttar
meta röralagnir og hvað þær þurfa að uppfylla til að standast kröfur
setja upp vökvakerfi samkvæmt leiðbeiningum, teikningum og fyrirmælum
vinna samkvæmt áætlunum og fyrirmælum
prófa einstakar einingar vökvakerfa, s.s. vökvatjakka, magnstilliloka, þrýstimæla og stjórnloka
meta áhættuþætti varðandi vinnuvernd og hollustuhætti á vinnustað