Í þessum áfanga er fjallað um jafnstraums-mótora og rafala, einfasa riðstraums -mótora og -spennubreyta. Tengdar eru ýmsar rafvélar, gerðar prófanir og mælingar á þeim til skýrslugerðar. Fjallað er um merkiskilti og upplýsingarit fyrir mismunandi rafvélar og notkun þeirra.
Nemendur hafi lokið grunndeild rafiðna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni einfasa rafala, mótora og spenna
tengingum á þessum búnaði
mælingum á þessum búnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja mismunandi einfasa rafvélar
framkvæma mælingar á þeim
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa skýrslur um mismunandi einfasa rafvélar
leiðbeina um val á mismunandi einfasa rafvélum við mismunandi aðstæður