-rafalar og -spennubreytar, Jafnstraumsvélar, þrífasa riðstraumsmótora
Samþykkt af skóla
2
3
FB
Í þessum áfanga er fjallað um jafnstraumsvélar, þrífasa riðstraums -mótora, -rafala og -spennubreyta. Tengdar eru ýmsar rafvélar, gerðar prófanir og mælingar á þeim til skýrslugerðar. Fjallað er um merkiskilti og upplýsingarit fyrir mismunandi rafvélar og notkun þeirra.
RRVV2RA03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni jafnstraums -mótora og -rafala, þrífasa riðstraums -rafala, -mótora og -spenna
tengingum á þessum búnaði
mælingum á þessum búnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja mismunandi þrífasa riðstraums rafvélar og jafnstraums rafvélar
framkvæma mælingar á þeim
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa skýrslur um mismunandi þrífasa riðstraums- og jafnstraums- rafvélar
leiðbeina um val á mismunandi þrífasa riðstraums og jafnstraums- rafvélum við mismunandi aðstæður