Nemendur læra að beita rásahermiforritum til að teikna og prófa einfaldar rafeindarásir. Nemendur gera jafnframt allar mælingar í slíkum forritum, smíða rás, prentplötu og setja rásirnar saman. Síðan staðfesta þeir virkni rásarinnar.
VGRT2GB03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Virkni rásahermiforrita.
Virkni helstu íhluta.
Hvernig kopar prentrása er.
Forritum til að teikna prentrásir.
Forritum sem teikna rafeindarásir.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Vinna með og prófa rásir í rásahermum.
Snúa skematískum teikningum yfir á prent.
Mæla og prófa rásir bæði í rásahermi og raunrás.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Teikna rafeindarás í rásahermi.
Láta rásina virka í rásahermi.
Mæla spennur, strauma og viðnám í rásahermi.
Hanna prent út frá rásateikningu.
Smíða rás með etching aðferð.
Prófa og staðfesta virkni í raunrás.
Að minnsta kosti 5 verkefni standi undir námsmati þar sem hvert hefur 5 – 25% vægi.
Í hverjum þætti þarf að meta virkni rásar, frágang og vinnusemi nemandans.