Farið verður yfir: Breytur, föll og ferla. Línur, fleygboga. Hornaföll. Notkun forrita við lausn stærðfræðilegra verkefna.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum
beinum línum, fleygbogum og skurðpunktum grafa
fallhugtakinu, formengi falls og bakmengi
margliðum; þáttun, núllstöðvum
hornaföllum
grunnatriðum stærðfræðiforrita
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lýsa sambandi tveggja breyta á myndrænan hátt
nota forrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
leysa 1. og 2. stigs jöfnur
lýsa raunverulegum fyrirbrigðum með notkun falla
meðhöndla hornaföll
geta sannað ákveðna efnisþætti.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega með viðeigandi hætti
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu viðfangsefna um föll og ferla
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi um föll og ferla í mæltu máli og texta
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
skilja merkingu og tengsl hugtaka sem notuð eru í útreikningum um föll og ferla
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.