Saga vestrænnar klassískrar tónlistar til ca. 1820
for inspection
1
2
TA
Áfanginn miðar að því að nemendur öðlist haldgóða innsýn í sögu vestrænnar klassískrar tónlistar fram að rómantíska tímabilinu (til ca. 1820). Farið er í alla helstu strauma og stefnur og stíl þekktustu tónskálda. Hlustað er á allmörg verk eftir þau, verkin formgreind og hljóðfæranotkun skoðuð. Einnig er farið stuttlega í sögu og þróun hljóðfæra og hljómsveita í Evrópu á þessum tíma. Stiklað er á stóru í ævi helstu tónskálda sem koma við sögu. Nemendur skulu hafa orðaforða og skilning til að geta tjáð sig um námsefnið í ræðu og riti. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni þar sem þeir nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru með forritum, á vef eða í bókum.
Miðpróf í tónfræðigreinum eða sambærilegt nám
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Sögu vestrænnar tónlistar fram til ca. 1820
Straumum og stefnum í tónlist
Stíl ólíkra tónskálda
Sögu þekktustu tónskálda sem fjallað er um í áfanganum
Notkun hljóðfæra og sögu þeirra
Orðaforða í tengslum við efni áfangans
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Formgreina verk sem kennd eru í áfanganum
Greina á milli ólíkra stíla tónlistar
Leita samhengis og tengsla milli tímabila, svæða og sviða
Nýta sér mismunandi birtingarform tónlistarsögunnar; kennslubækur, handbækur, fræðirit, myndefni og internetið
Tjá sig með skýrum hætti í ræðu og riti um viðfangsefni áfangans
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Greina ólíka stíla tónlistar
Segja frá í ræðu og riti, helstu tónskáldum sem fjallað var um í áfanganum og þekkja helstu verk þeirra
Sjá tengsl tónlistarsögu við sögu heimsins
Leita sér frekari upplýsinga um sögu hljóðfæris síns og uppruna þess
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.