Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1517398351.93

    Strengjasveit
    STSV2KA02
    None
    Samspil - strengjasveit
    Spila margskonar tónlist með öðrum strengjaleikurum
    for inspection
    2
    2
    TA
    Áfanginn miðar að því að nemendur læri að fylgja stjórnanda og þjálfist í samspili, inntónun og túlkun ólíkra tónlistarstíla. Nemendur auka færni sína í nótnalestri og kynnast fjölbreyttri tónlist fyrir strengjasveit. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð, tileinki sér árangursríka námstækni og átti sig á sögulegu samhengi þeirra verkefna sem fengist er við með því nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru á vef eða í bókum.  
    Miðpróf í hljóðfæraleik eða sambærilegt nám.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Tónlist fyrir strengjasveit frá ólíkum tímum og sögulegu samhengi þeirra
    • Einkennum mismunandi tónlistarstíla
    • Uppbyggingu strengjasveitar og hlutverki hvers hljóðfærahóps í vef tónlistarinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fylgja stjórnanda
    • stilla inntónun og takt að öðrum hljóðfæraleikurum í sveitinni
    • Túlka tónlistina á viðeigandi hátt eftir tónlistarstíl
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leika í strengjasveit undir stjórn stjórnenda
    • spila ólík strengjasveitarverk af öryggi
    • geta greint helstu strengjasveitarverk og áttað sig á sögulegu samhengi þeirra.
    Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.