Spila margskonar tónlist með öðrum strengjaleikurum II
for inspection
2
2
TA
Áfanginn miðar að því að nemendur læri að fylgja stjórnanda og þjálfist í samspili, inntónun og túlkun ólíkra tónlistarstíla. Nemendur auka færni sína í nótnalestri og kynnast fjölbreyttri tónlist fyrir strengjasveit. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð, tileinki sér árangursríka námstækni og átti sig á sögulegu samhengi þeirra verkefna sem fengist er við með því nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru á vef eða í bókum.
STSV2KA02 - Saga klassískrar tónlistar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Tónlist fyrir strengjasveit frá ólíkum tímum og sögulegu samhengi þeirra
Einkennum mismunandi tónlistarstíla
Uppbyggingu strengjasveitar og hlutverki hvers hljóðfærahóps í vef tónlistarinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fylgja stjórnanda
stilla inntónun og takt að öðrum hljóðfæraleikurum í sveitinni
Túlka tónlistina á viðeigandi hátt eftir tónlistarstíl
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leika í strengjasveit undir stjórn stjórnenda
spila ólík strengjasveitarverk af öryggi
geta greint helstu strengjasveitarverk og áttað sig á sögulegu samhengi þeirra.
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.