Áfanginn miðar að því að nemendur þjálfist í samspili, inntónun og túlkun mismunandi tónlistarstíla. Samspilskennsla tengir saman ólíka þræði rytmísks tónlistarnáms, svo sem hljóðfæranám, söng og tónfræðigreinar. Í áfanganum æfa nemendur ýmsa þætti sem víkja að færni þeirra s.s. hljóma-og nótnalestur, samstarf, spuna, túlkun og framkomu og færni á eigið hljóðfæri. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni þar sem þeir nýta þau hjálpargögn sem aðgengileg eru með forritum, á vef eða í bókum.
HLSV2RA02
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeirri tækni sem þarf til að leika á hljóðfærið þau verkefni sem lögð eru fyrir í áfanganum
ólíkum stílum rytmískrar tónlistar
uppbyggingu hljómsveita og samspilshópa með ólíka hljóðfærasamsetningu
mikilvægi góðrar samvinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leika verk í mismunandi stílum rytmískum tónlistar
nýta tæknilega kunnáttu sína sem best í flutningi
lesa nótur og hljóma frá blaði sem hæfa áfanganum
sjálfstæðum vinnubrögðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta leikið með hljómsveit ólíka stíla rytmískrar tónlistar miðað við sitt getustig
vinna með hljómræna, rytmíska og lagræna þætti þeirrar tónlistar sem unnið er með m.a. í tilliti til spuna
vinna sjálfstætt
geta bæði leitt og fylgt í samspili
stuðla að góðri samvinnu og taka tillit til annara
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.