Áfanginn er verklegur og einstaklingsmiðaður þar sem nemandi sækir einkatíma í hljóðfæraleik og meðleik, þar sem það á við. Áfanginn miðar að því að nemendur læri að spila ólíka tónlistarstíla og þjálfist í tækni og líkamsbeitingu til að ná sem bestri færni á hljóðfæri sitt. Nemendur þjálfast líka í að spila með öðrum, í nótnalestri og hvað það er að vera leiðandi í tónlistarflutningi. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og tileinki sér árangursríka námstækni.
HLFÆ2KA06 - Hljóðfæraleikur, klassískur
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Tónbókmenntum og sögu viðkomandi hljóðfæris
Ólíkum tónlistarstílum
Sjálfstæðum vinnubrögðum
Þeirri tækni sem þarf til að leika á hljóðfærið þau verkefni sem lögð eru fyrir í áfanganum
Vinnubrögðum við að fullvinna verk með meðleikara
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Leika verk í mismunandi stílum
Nýta tæknilega kunnáttu sína sem best í flutningi
Lesa nótur frá blaði sem hæfa áfanganum
Beita líkama sem eðlilegast við flutning tónlistar
Sýna frumkvæði í vinnu með undirleikara
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Geta greint ólíka stíla tónlistar
Vinna sjálfstætt
Sýna frumkvæði í hljóðfæratímum og við heimanám
Leika verkefni áfangans á sannfærandi hátt
Flytja tónlist með öðrum hljóðfæraleikurum
Fullvinna verkefni með undirleikara
Koma fram á tónleikum með verkefni sem unnin eru í áfanganum
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.