Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1517907181.23

    Útivist og umhverfisskoðun
    ÚTIV2ÚU05
    5
    Útivist
    Útivist og umhverfisskoðun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga í útivist og umhverfisskoðun er markmiðið að flétta saman líkams- og heilsurækt, umhverfisfræði, jarðfræði, landafræði, almennri náttúruskoðun og náttúruupplifun. Einnig er lögð áhersla á að leiða nemendum fyrir sjónir að útivist er góð leið til að byggja sig upp, andlega og líkamlega um leið og þeir njóta þess að vera úti í náttúrunni. Í kennslustundum verður farið í göngur í nágrenni skólans sem nemendur taka þátt í að skipuleggja. Einnig verður farið í þrjár til fjórar lengri göngur. Nemendur læra um útivist, útbúnað fyrir gönguferðir í íslenskri náttúru eins og t.d. notkun korta, áttavita og GPS tækja. Með þessari samtvinnun er reynt að skapa áhuga og skilning á umhverfi og útvist. Nemendur eru þjálfaðir í að lesa í landið, afla sér þekkingar með heimildavinnu. Fræðileg umfjöllun greinarinnar tengir forsendur útivistar og þau ummerki sem eru hvarvetna sýnileg í landslaginu í kringum okkur í merkingarbæra heild. Kynntar eru almennar staðreyndir í umhverfisfræði, landafræði og jarðfræði. Meðal þess sem fjallað er um er: undirbúningur fyrir ferðalög og útbúnaður sem er nauðsynlegur; ferðaáætlanir og mat á aðstæðum; viðbrögð við óvæntum atvikum; kort og fjarkönnunargögn; svæðahugtakið, afmörkun svæða og skilningur á hvað þar er að finna. Grundvallarnálgun viðfangsefnisins snýst um að nemendur verði færir um að skipuleggja og búa sig til gönguferða, fái holla hreyfingu og augu þeirra opnist fyrir gildi útivistar í náttúru Íslands. Með vettvangsferðum og heimildavinnu er leitast við að opna augu nemenda fyrir lögmálum þeirra fræðigreina sem koma við sögu í mótun og nýtingu landsins. Lífvana hluti jarðar í daglegu umhverfi nemendanna er settur í víðara samhengi og þannig reynt að gera þá meðvitaða um hvað og hvers vegna náttúrulegt umhverfi er eins og raun ber vitni og hvernig er líklegt að það þróist. Takmarkið er að gera nemendur læsa á umhverfið og þannig auka yfirsýn og skilning sem geti leitt til meðvitundar um og virðingar fyrir náttúrulegum ferlum. Jafnframt tengja nemendur grunnþekkingu við raunverulegar aðstæður og auka þannig færni sína til frekara náms og skilnings í umhverfisfræði, jarðfræði og landafræði.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forsendum útivistar og uppbyggingu ferðaáætlana
    • notkun GPS tækja, korta og áttavita
    • mikilvægi næringar, hvíldar og virkni í tengslum við gönguferðir úti í náttúrunni
    • nauðsynlegum útbúnaði, klæðnaði og réttri líkamsbeitingu við útivist
    • notagildi jarðfræðilegrar, landfræðilegrar og umhverfisfræðilegrar þekkingar og mikilvægi þeirra til skilnings á umhverfinu
    • mikilvægi almennrar náttúruskoðunar og náttúruupplifunar
    • mikilvægi þess að ganga vel og snyrtilega um landið og taka þátt í hreinsun þess þar sem því verður við komið
    • mótun landsins og áhrifum náttúruaflanna á þá mótun (jarðskjálftar, eldgos, veðrun, rof o.fl.)
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla sér upplýsinga um útivist og umhverfi og útbúa raunhæfa ferðaáætlun
    • útbúa sig til ferða og fara um í íslenskri náttúru og veðurfari af öryggi og virðingu
    • beita GPS tækjum, kortum og áttavita úti í náttúrunni
    • bera kennsl á ýmis jarðfræðileg fyrirbæri í íslenskri náttúru ásamt því að kunna skil á því hvernig landslag verður til
    • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja búnað fyrir gönguferðir í samræmi við aðstæður (klæðnað, næringu o.s.frv.)
    • taka þátt í útivist þar sem krafist er sérstaks búnaðar, vera fær um að meta ástand og geta breytt áætlunum af öryggi ef aðstæður breytast
    • geta lesið í umhverfi sitt
    • tengja undirstöðuþætti útivistar, almennrar náttúruskoðunar, landafræði, umhverfisfræði og jarðfræði við umhverfi sitt og fjalla á rökrænan hátt um mikilvægi og notagildi þeirra fyrir daglegt líf.
    Áfanginn er símatsáfangi og er mæting og þátttaka í göngunum sem farnar verða stærsti hluti námsmatsins.