Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1519638840.12

    Vélstjórn 4
    VÉLS3VK05(AV)
    8
    Vélstjórn
    kerfi, kraftar, vélarhlutar, vélarrúm
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    AV
    Nemendur eiga með hjálp teikninga og upplýsinga að öðlast dýpri þekkingu á uppbyggingu einstakra vélarhluta, hvernig þeir starfa, geta metið ástand þeirra. Í þessum áfanga er fjallað um ræsiloft og ræsiloftskerfi stórra tvígengisvéla einstaka hluti þeirra og öryggisþætti, afgaskerfi, skólp- og sorakerfi, sjókerfi og ferskvatnskerfi til almennra nota. Fyrirkomulag í vélarrúmi og austurskiljur. Fjallað er um legur, þ.m.t. hvítmálmslegur, uppbyggingu og gerð þeirra. Fjallað um krafta í bulluvélum, um sveiflumyndun í vélum og vélakerfum, um eigin tíðni, um gerð og hlutverk dempara og eftirlit með þeim, um byggingu meðalhraðgengra og hraðgengra dísilvéla og ýmis rekstraratriði varðandi svartolíubrennslu og gangtruflanir. Í hinum verklega þætti er áhersla lögð á eftirfarandi: Keyrslu vélarrúms þjálfuð viðbrögð við gangtruflunum (gert í vélarrúmshermi). Skilvindur, viðhald á þeim og rekstur. Þrýstivökvakerfi og vökvagíra svo og eldsneytiskerfi háþrýstivökvakerfi spilkerfi þar sem glussi er nýttur til framdriftar. Mismunandi gerðir glussa-spilkerfa. Kröfur flokkunar félaga til ýmiskonar vélabúnaðar kynntar.
    VÉLS2TK05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu ræsiloftskerfa og öllum helstu hlutum þess, þar á meðal tveggja þrepa loftþjöppu, ræsilofthylki með öllum lokum og allan annan búnað sem tilheyrir slíku kerfi til gangsetningar á vélum
    • þeim kröfum sem flokkunarfélögin gera til hinna ýmsu kerfa í vélarúmum skipa
    • þeim mismun á stjórnkerfum og öruggum stjórntökum skips sem annarsvegar hafa skipti skrúfu og hinsvegar eru snarvend með fasta skrúfu
    • öllum helstu kerfum vélarúms sem nauðsynleg eru til keyrslu brunavéla, meðhöndlun á olímenguðum austri og búnað til framleiðslu á ferskvatni
    • uppbyggingu stórra tvígengisvéla og eldsneytiskerfum slíkra véla
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera stóra skipavél klára fyrir ræsingu, hafa með fullnægjandi hætti uppfyllt alla þætti sem að öryggismálum snúa
    • finna bilanir sem upp geta komið í ræsiloftskerfi vélar og lagfært
    • ræsa ferskvatnseimara og vera fær um að átta sig á hvort eimarinn vinni með þeim hætti sem vera skal
    • ræsa hin ýmsu kerfi í vélarúmi skips svo sem eldsneytis skilvindur, leggja mat á hvort kefin vinni með eðlilegum hætti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra mismunandi loftræsibúnað dísilvéla
    • standa vakt í vélarrúmi og bregðast við þeim aðvörunum sem aðvörunarkerfið gefur til kynna að lagfæra þurfi
    • draga ályktun um ástand búnaðar útfrá mæliaflestrum og sýna frumkvæði sem vélstjóri til lagfæringa ef nauðsynlegt er
    • útskýra fyrirkomulagsteikningar í vélarrúmi og rörateikningar mismunandi kerfa
    • útskýra grunnbyggingu nútíma meðalhraðgengra dísilvéla
    • útskýra ýmis mikilvæg hönnunar og rekstraratriði sem varða brennslu svartolíu í dísilvélum með tilliti til byggingar vélarinnar, skolloftskerfisins, eldsneytis-, kæli- og smurolíukerfisins
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.