Nemanda eru kynntar öryggiskröfur á vinnustað og mikilvægt er að hann skilji mikilvægi þeirra. Honum skal gerð grein fyrir þeim hættum sem geta verið samfara vinnu við rafmagn. Nemandi öðlist reynslu í viðgerðum og viðhaldi á ýmiskonar rafeindabúnaði. Nemandi fá þjálfun í góðum frágangi og fagmannlegum vinnubrögðum. Nemandi nái tökum á og skilji virkni þeirra rása og tækja sem hann vinnur við og geti bilanagreint, skipt um íhluti og gert við. Nemandi fær þjálfun í teikningalestri og að rekja signalleiðir og beitingu mælitækja við bilanaleit og stillingu á rafeindabúnaði og þjálfist í notkun helstu handverkfæra þar að lútandi.
Nemandi skal hafa lokið 2 önnum (60 einingum) í rafvirkjun
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi góðs frágangs á rafeindabúnaði út frá notkunarsviðum
mikilvægi þols búnaðar gagnvart ytri aðstæðum
teikningum og teiknistöðlum í rafeindateikningum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
mæla og bilanagreina rafeindabúnað
gera við og ganga frá rafeindabúnaði
teikna og leiðrétta teikningar eftir þörfum
finna íhluti út frá samanburðartöflum til útskiptingar á biluðum íhlutum
starfa sjálfstætt og vinna með fagfólki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bilanagreina og lagfæra rafeinda og rafmagnsbúnað af ýmsu tagi í samvinnu við meistara
gera við einfaldar rafeindarásir og skipta út íhlutum