Nemandinn kynnist vinnu á bak við tjöldin í leikhúsi, sjónvarpi og við myndatökur af ýmsum toga. Dýpkaður er skilningur á nokkrum tímabilum í hársögunni og hártísku sem endurspeglar þau. Unnið er með hárkollur, farið í ásetningu þeirra og umhirðu einnig er hárkollugerð kynnt og ýmis gervavinna. Nemendur taka virkan þátt í mismunandi verkefnum tengdum þessum þáttum.
Þetta er valáfangi sem eykur víðsýni nemandans og styrkir grunn til frekara náms á þessu sviði. Einnig styrkist nemandinn gagnvart ýmsum verkefnum brautarinnar og öðlast aukna möguleika á að koma sér á framfæri í faginu.
HÁRG2FB03DH
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeirri vinnu sem snýr að hári í leikhúsi og á tökustað. Hvernig hægt er að endurspegla tímabil í hársögunni með einföldum greiðslum og fylgihlutum.
hvernig hægt er að ná fram einkennandi karakterum, þjóðerni og stemningu með hugmyndavinnu og sköpun.
hárkollum, gerð þeirra, ásetningu og umhirðu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita hugmyndavinnu til sköpunar og lausnaleitar.
vinna með öðrum að settu marki.
setja hárkollu á módel.
leita lausna til að ná fram því sem verkefnin krefjast.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
endurspegla ákveðin tímabil með tilheyrandi greiðslum og fylgihlutum.
starfa með fagfólki og áhugafólki að ýmsum verkefnum og uppákomum.
útfæra heildstætt verk með hliðsjón af hári, förðun, fylgihlutum og túlkun.
stunda frekara nám til undirbúnings vinnu við leikhús og fjölmiðla.