Nemendur öðlast yfirsýn yfir allt vinnsluferlið frá veiðum til neytenda. Fjallað eru um virðiskeðju með áherslu á hráefnisgæði, vinnsluhraða og og öryggi. Farið er yfir gæðakerfi allra framleiðsluþátta, innra og ytra eftirlit. Nemendur þjálfast í verkstjórn og að meta umhverfisþætti á vinnustað, sem hafa áhrif á heilsu þeirra og/eða annarra starfsmanna. Nemendur þjálfast í samskiptum, líkamsbeitingu og skyndihjálp sem allt miðar að því að gera vinnustaðinn heilsusamlegri og öruggari.
Fisktækni 1
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
öllum helstu verkunaraðferðum fisks og framleiðsluaðferðum afurða
eftirliti með vinnslu í vélum, mati á gæðum afurða og hráefnisnýtingu
örverufræði; helstu tegundum örvera, vaxtaskilyrðum, efnislægum og smitnæmum óhreinindum
fyrirbyggjandi aðferðum gegn örverum
verkstjórn, samsktipum, líkamsbeitingu og öyggismálum á vinnustað
starfsemi fiskmarkaða; uppboðskerfi, verðmyndun á fiski, afurðaverði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna í fiskvinnslu
vera verkstjórar, eiga í samskiptum við starfsfólk og leiðbeina því
meta öryggi á vinnustað og bregðast við ógnunum
sinna og meta hreinlæti á vinnustað
fylgjast með félagslegum þáttum sem geta haft áhrif á heilsufar starfsmanna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka ábyrga afstöðu til hreinlætis og umgengni í vinnslu
sinna eftirliti með vinnslu, gæðum afurða og hráefnisnýtingu
gæta fyllsta öryggis á vinnustað og greina þær hættur sem geta ógnað heilsusamlegu vinnuumhverfi
vera fær verkstjóri og hvetja starfsfólk sitt áfram
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.