Lögð er áhersla á grundvallaratriði aflrása. Fjallað er um nöfn, gerð og hlutverk íhluta, kerfa og hvernig þau starfa sjálfstætt og/eða sem heild í ökutækinu. Farið er yfir mismunandi kröfur til aflrása eftir notkunarsviði ökutækis. Reiknuð eru drifhlutföll. Farið er yfir kúplingar, sérkenni þeirra og einstakra hluta. Fjallað er um aðferðir við að skoða, meta, prófa kúplingar. Kennd vinnubrögð við viðgerðir og samsetningar kúplinga. Gírkassar og einstakir hlutar þeirra eru teknir í sundur skoðaðir, metnir og settir saman. Lögð er áhersla á að nemendur temji sér frá upphafi viðeigandi vinnubrögð við bilanagreiningar og viðgerðir. Svo sem að afla sér upplýsinga í tækniupplýsingum framleiðanda, notkun sérverkfæra og léttibúnaðar.
Farið er yfir helstu gerðir kúlu- og keflalega ásamt kröfum um meðferð, umhirðu og stillingar. Fjallað er yfir mat á legum og hvað geti valdið skemmdum á legum. Skoðaðar eru ýmsar gerðir af hverfiliðum, hjöruliðum og samhraðaliðum. Nemendur læra vinnubrögð við að meta ástand liða, taka drifsköft og driföxla úr ökutæki og hvernig standa skuli að viðgerðum. Áhersla er lögð á öryggi við vinnu undir ökutæki, hreinlæti og ábyrgð viðgerðamanna vegna umferðaröryggis.
VÉLS1GV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
algengum aflrásum ökutækja með ýmsar drifútfærslur
helstu gerðum kúplinga og verkfæra til að losa þær frá hreyflinum
aðgæsluatriðum við viðgerðir á kúplingum og gírkössum
verkfærum, tækjum og búnaði sem notaður er í vinnu við kúplingar
helstu ástæðum bilana í kúplingum og gírkössum
mismunandi handskiptum gírkössum og íhlutum þeirra
hvar megi finna upplýsingar um ástand íhluta og hvernig skuli meta þá
helstu gerðum driföxla og drifliða
ástæðum bilana í drifliðum og hjólalegum
íhlutum drifa og mismunadrifa
helstu gerðum kúlu- og keflalega
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna drifhlutfall í aflrás
losa kúplingu frá hreyfli
setja kúplingu saman og lýsa aðgæsluatriðum
taka handskiptan gírkassa úr og í sundur
setja gírkassa saman eftir fyrirmælum í tækniupplýsingum framleiðanda
skipta um hjólalegur ásamt fylgihlutum og stilla ef við á
taka drifsköft, driföxla og drifliði úr ökutæki, meta ástand og gera við eða setja í nýja liði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa virkni helstu tækja, vélbúnaðar og kerfa aflrásarinnar
lýsa virkni kúplinga
lýsa virkni handskiptra gírkassa og tilgangi þeirra
lýsa virkni sjálfvirkra gírkassa og tilgangi þeirra
lýsa innri gerð gírkassa og hlutverki íhluta
lýsa ástandi íhluta og hvernig skuli meta þá
lýsa kröfum til drifliða
lýsa tilgangi drifa og virkni mismunadrifa
lýsa meðhöndlun lega og mati á ástandi þeirra
lýsa hvernig meta skuli ástand drifliða
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.