Gerður er samanburður á eldsneyti ökutækj s.s. metan, bensín og fjölblendiökutækja. Farið er yfir helstu gerðir innsprautunnarkerfa ottóhreyfla, vélræn og rafræn, einspíssa og fjölspíssa. Farið er yfir brunaferil í hreyfli og samband kveikitíma annars vegar og álags og snúningshraða hreyfils hins vegar. Einnig spennuþörf til íkveikju. Gerðar eru mælingar á fæði- og kerfisþrýstingi eldsneytis. Farið yfir kerfisþrýsting ýmissa kerfa. Skoðuð eru kveikikerfi, þ.e. snertustýrt háspennukefli og rafeindastýrt háspennukefli (span-skynjarar og Hall-skynjarar). Þjálfuð er notkun mæli- og prófunartækjanna sveiflusjár, afgasgreinis og skanna. Farið er yfir samvirkni ýmissa þátta í vinnu brunahreyfla ásamt virkni og prófun skynjara. Áhersla er lögð á varúð í umgengni við kveikibúnað vegna hárrar spennu, íkveikihættu og slysahættu. Farið yfir reglugerðir fyrir ökutæki sem nýta óhefðbundið eldsneyti.
Farið er yfir byggingarlag og vinnuhátt eldsneytiskerfa dísilhreyfla og þjálfað reglubundið viðhald, svo sem síuskipti, prófun og viðgerðir spíssa og tímastilling innsprautunnar. Skoðaður er rafstýribúnaður eldsneytiskerfa.
BVHR2VH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mæliatriðum sem varða innsprautunnar- og kveikikerfi
gangverki hreyfils með innsprautunnar- og kveikikerfi
íkveikihættu vegna eldsneytis og eitrunarhættu af útblástursgasi
mæli- og prófunartækjum: þrýstimælum, fjölsviðsmælum, sveiflusjá, afgasgreini og skanna
hættum af háþrýstibúnaði eldsneytiskerfa
byggingarlagi og vinnuhætti eldsneytiskerfa dísilhreyfla
rafstýribúnaði eldsneytiskerfa
kröfum vegna umgengni við eldsneytiskerfi dísilhreyfla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
prófa og skipta um eldsneytisspíssa og/eða hreinsað þá
mæla fæði- og kerfisþrýstingi í eldsneytiskerfi
sækja bilanakóða í tölvu hreyfils með prófunartæki
afgasmæla útblástur frá hreyfli bifreiða
skipta um rekstrarhluti í kveikikerfi s.s. kveikikerti
sinna reglubundnu viðhaldi, m.a. síuskiptum
skipta um íhluti eldsneytiskerfa
prófa og gera við eldsneytisspíssa
tímastilla innsprautunardælur (deili- og raðdælur)
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa gerð og virkni helstu gerða eldsneytiskerfa ottóhreyfla
lýsa gerð og virkni helstu gerða kveikikerfa ottóhreyfla
benda á helstu íhluti og lýst hlutverki þeirra
lýsa virkni metankerfis ökutækja
skipta um íhluti innsprautunnar og kveikikerfis hreyfla
lýsa virkni hreinsibúnaðar hreyfla, útblásturshvarfakúti, loftræstingu sveifarhúss og eldsneytisgeymis
lýsa gerð og virkni algengra eldsneytiskerfa dísilhreyfla og einstakra hluta kerfanna
lýsa hvernig greina má algengar bilanir eldsneytiskerfa dísilhreyfla
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.