Farið yfir hugmyndafræði, upphaf blendingsbifreiða og gildi þeirra fyrir orkusparnað. Skoðuð yfir kerfisuppbygging blendingsbifreiða. Farið yfir virkni helstu íhluta rafbúnaðar og hvernig þeir eru frábrugðnir öðrum ökutækjum. Farið yfir uppbyggingu og virkni rafgeyma, hvernig búnaðurinn starfar með Atkinson hreyfli. Vinnubrögð við mælingar með bilanagreini og mat íhluta. Gerðar mælingar á afgasi hreyfils og gerðir útreikningar á losun mengandi efna. Lögð áhersla á öryggi og hættur sem eru til staðar við þjónustu og viðhald blendingsbifreiða.
Farið yfir vetnisknúin ökutæki í heild sinni. Gerður samanburður á mengunarþáttum annarra eldsneytisefna og vetnis. Skoðaðir helstu þættir sem valda gróðurhúsaáhrifum og hlýnunjarðar. Kynnt framleiðsla vetnis til notkunar í ökutækjum. Farið yfir virkni vetnisknúinna ökutækja í heild, virkni vetnisrafala og hvernig þeir vinna rafmagn til hleðslu rafgeyma. Farið yfir þær hættur sem stafa af háspennu úr rafgeymasamstæðum, meðhöndlun, viðhald og þjónustu ýmissa íhluta búnaðar.
BVHR3VT03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni brunahreyfla
virkni rafhreyfla og rafala
helstu gerðum rafgeyma
umgengisreglum og hættum vegna háspennu í rafbúnaði ökutækis
framleiðsluferli vetnis
vinnuferli efnarafala
aðferðum við mælingar á rafbúnaði vetnisknúinna ökutækja
kostum og sparnaði við notkun nýorkugjafa
hættum af háspenntum rafbúnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
mæla rafbúnað blendingsbifreiða
mæla fæði- og kerfisþrýstingi í eldsneytiskerfi
sækja bilanakóða í tölvu hreyfils með prófunartæki
mæla rafbúnað vetnisknúinna ökutækja
mæla ástand rafgeyma
sækja bilanakóða í stjórntölvu ökutækis með prófunartæki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa uppruna og áhrifum umhverfismengunar
lýsa virkni blendingsbúnaðar bifreiða
lýsa mælingum og prófunum á rafbúnaði blendingsbifreiða
lýsa gerð og virkni helstu íhluta
lýsa öryggiskröfum við þjónustu og viðgerðum vetnisknúinna ökutækja
benda á helstu íhluti og lýsa hlutverki þeirra
lýsa mengandi áhrifum efna og hvernig megi vinna gegn gróðurhúsaáhrifum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.