Farið yfir rafbúnað og raflagnir stærri ökutækja; strætisvagna, hópbifreiða, hjólhýsa og húsbíla. Einnig farið yfir rafbúnað og raflagnir vöruflutningabifreiða, dráttarbifreiða og ýmissa vinnuökutækja. Netkerfi og samskiptabúnaður sem stjórnar raftækjum skoðaður. Farið yfir hljóð- og merkjakerfisbúnað til þæginda og/eða upplýsinga fyrir farþega í strætisvögnum og hópbifreiðum.
BMRS4ST05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
rafhreyfibúnaði fyrir íhluti; lok, hurðir, speldi og lokur í loftræsti- og hitakerfum
raflögnum; efni, tengingum og umbúnaði raflagna í stærri ökutækjum innilýsingu í vistrými stærri ökutækja
ljósakerfum ökutækja
netkerfum stjórnboða í ökutækjum
gerð og virkni hljóð- og merkjakerfisbúnaðar í strætisvögnum og hópbifreiðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
finna upplýsingar í viðgerðaleiðbeiningum sem nauðsynlegar eru við greiningu og viðgerð á raf- og samskiptakerfum stærri ökutækja
leiðbeina öðrum viðgerðamönnum um viðgerðir raf- og samskiptabúnaðar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina bilanir í ýmsum raf- og samskiptakerfum stærri ökutækja
gera við eða skipta um einingar eða íhluti í raf- og samskiptakerfum stærri ökutækja
leiðbeina ökumönnum stærri ökutækja um notkun ýmiss raf- og samskiptabúnaðar og viðbrögð við gangtruflunum eða bilunum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.