Farið er yfir gerð tölvustýrikerfa, staðsetningu íhluta, hlutverk þeirra og virkni kerfanna. Skoðaðar eru aðferðir til að prófa kerfin bæði með sveiflusjá og skanna. Farið er yfir hvaða atvik eða bilanir geti vakið bilanakóða og hvernig staðið skuli að viðgerð kerfanna. Áhersla lögð á hvað má og má ekki í umgengni við kerfin. Farið er yfir virkni netkefa (CAN) og tengingu þess við hreyfilstýringa ökutækja.
Farið yfir helstu hugtök í rafbúnaði ökutækja áhrif og getu búnaðs til stýringar, stjórnunar og samskipta í bifreiðum. Farið yfir rökrásaruppbyggingu og talnakerfi. Nemendur kynna sér helstu samskiptakerfi ökutækja. Farið yfir notkun bilanagreina og sveiflusjár til greininga á samskiptabúnaði ökutækja. Farið yfir tákn bilanakóða ökutækja tengdum samskiptum í netkerfi þeirra. Áhersla á verklegar æfingar í notkun mælitækja, bilanagreina og búnaðs sem greint getur rafræn samskipti. Áhersla lögð á notkun greinitækja, sveiflusjár og AVO mælitækja.
BRAF3RB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu ýmissa netkerfa ökutækja
heildarvirkni rafbúnaðar bifreiða með netkerfi
sýnilegum bilanakóðum
helstu gerðum tölvustýrikerfa hreyfla
helstu íhlutum og hvar þeir eru í ökutækinu
uppbyggingu samskiptamerkja hreyfla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota greiningartæki og sveiflusjá til að bilanagreina ökutæki
sinna reglubundnu viðhaldi og skipta um íhluti kerfa
mæla samskiptakerfi ökutækja
prófa kerfi með sveiflusjá og greiningarbúnaði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þjónusta netkerfi ýmissa ökutækja
nýta sér nýjustu greiningartæki til að bilanagreina
miðla þekkingu sinni til undirmanna sinna
lýsa helstu gerðum tölvustýrikerfa hreyfla og virkni þeirra
lýsa hvernig greina má einfaldar bilanir sem tengjast tölvustýrikerfum hreyfla
lýsa vinnslu samskiptabúnaðar í hreyfilstýringu ökutækja
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.