Nemandinn öðlist þekkingu og færni í greiningu á orsökum og afleiðingum slysa í umferðinni. Nemandinn öðlist færni í skoðun og framsetningu á ýtarlegri skýrslu um tjón á ökutæki, þar sem rannsókn leiðir einnig í ljós orsök áverka út frá afleiðingum. Verkleg æfing og skýrslugerð. Fjallað um mat á skemmdum á ökutæki eða öðru tilefni til viðgerða. Farið í notkun tjónamatskerfisins CABAS. Gerðar verklegar æfingar í notkun einingakerfis. Gerð kostnaðarútreikninga. Gerðar tímaáætlanir vinnuþátta. Útreikningar vegna tjónamats og verkáætlana. Áhersla á að matsmenn tileinki sér ábyrgð, nákvæmni og hlutlægni í starfi og hafi góða yfirsýn yfir verkefnið. Við mat sé þess gætt að fara eftir fyrirmælum framleiðenda um notkun efna og tækja.
BVVE2VS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tjónamatskerfum sem notuð er í greiningu almennra tjóna
eðli og skyldum matsmanna við gerð tjónamats
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera tjónamat á ökutæki ásamt skýrslugerð og framsetningu tjónaskoðana
gera kostnaðarútreikninga og tímaáætlanir
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
framkvæma ítarlega skoðun á tjóni sem orðið hefur á ökutæki
meta ástand einstakra hluta eða kerfa sem eru skemmd eða hafa hugsanlega skemmst
meta og bera saman íhluti og efnavörur sem tengjast viðkomandi matsverkefni
útskýra það sem fram kemur í tjónamatsskýrslu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.