Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1525878100.52

    Bókmenntir, málfræði og orðaforði
    ENSK2BO05(21)
    66
    enska
    Bókmenntir, málfræði, orðaforði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    21
    Í áfanganum er áhersla lögð á lestur flóknari texta en áður og að nemendur læri að lesa „á milli línanna“. Lesin eru bókmenntaverk og þau túlkuð með tilliti til sögu og bókmenntalegra skírskotana. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að að tjá hugsanir sínar og skoðanir í ræðu og riti og geti rökstutt mál sitt. Nemendur fá grunnþjálfun í að leita heimilda, t.d. á bókasöfnum, veraldarvefnum, í margmiðlunarefni o.s.frv.
    ENSK2BL05(11)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu reglum enskrar málfræði og geta beitt þeim af öryggi
    • þeim orðaforða sem unnið er með í áfanganum og geta beitt honum af öryggi í viðeigandi samhengi
    • helstu hugtökum sem að gagni koma í bókmenntagreiningu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa fjölbreytta bókmenntatexta og beita grunnhugtökum í bókmenntafræðilegri greiningu þeirra
    • hlusta á og skilja ensku sem töluð er við ólíkar aðstæður og með mismunandi hreim
    • bregðast við töluðu máli á ólíkan hátt, t.d. með endursögn (munnlegri, skriflegri), svörum, útdrætti o.s. frv.
    • tjá sig skriflega í ritunarverkefnum þar sem reynir á ímyndunarafl og skapandi notkun málsins.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu orða ...sem er metið með... ýmiss konar bókmenntaverkefnum og/eða ritgerð
    • halda stutt erindi um sérhæft efni með viðeigandi orðaforða og með eðlilegum hraða og hrynjandi ...sem er metið með... munnlegri kynningu
    • beita helstu málfræðireglum á réttan hátt ...sem er metið með... ýmiss konar verkefnum og/eða prófum
    • draga aðalatriði úr töluðum og rituðum texta ...sem er metið með... ýmiss konar verkefnum og/eða prófum.
    Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem felst í því að nemandinn fái með skipulegum og reglulegum hætti upplýsingar frá kennara um hvernig hann stendur í náminu. Meðal námsmatsþátta eru ýmiss konar verkefni (bæði einstaklings- og hópverkefni, munnleg verkefni og skrifleg), tímaritgerð, hlustunaræfingar auk munnlegra og skriflegra prófa.