Í þessum áfanga er fjallað um vísindatengt efni á margvíslegan máta. Nemendur leysa margs konar lesskilningsverkefni um vísindatengt efni og vinna að þýðingum, bæði á ensku og íslensku, til þess að auka orðaforða sinn. Mánaðarlega flytja nemendur kynningar á vísindatengdu efni sem þeir velja sjálfir (þó háð lokasamþykki kennara). Sjónrænir miðlar (myndbönd, DVD, veraldarvefur o.fl.) eru nýttir að töluverðu leyti í áfanganum. Stór hluti af námsmati áfangans felst í ritgerð þar sem ítarlegar kröfur eru gerðar til heimildavinnu og vísindalegrar framsetningar og fá nemendur markvissa þjálfun í slíkri vinnu. Ætlast er til að nemendur hafi gott skipulag á gögnum sem tengjast áfanganum, nýti kennslustundir vel til vinnu og sýni sjálfstæði í vinnubrögðum.
ENSK3BO05(21)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vísindatengdum orðaforða gerir honum kleift að tileinka sér lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
reglum og viðmiðum sem gilda um ritun heimildaritgerða samkvæmt þeim kröfum sem gerðar eru til slíkra ritsmíða á háskólastigi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um vísindalegt efni
lesa texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
beita enskri tungu af lipurð og kunnáttu til þess að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um vísindatengt málefni
flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði, rökstyðja mál sitt með dæmum og bregðast við fyrirspurnum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lýsa skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem hann hefur kynnt sér ...sem er metið með... kynningarverkefnum
skrifa texta með röksemdarfærslu þar sem fram koma meðrök og mótrök og þau eru vegin og metin ...sem er metið með... ritunarverkefnum
skrifa ritgerð sem fylgir kröfum um vísindalega framsetningu og meðferð heimilda ...sem er metið með... heimildaritgerð.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem felst í því að nemandinn fái með skipulegum og reglulegum hætti upplýsingar frá kennara um hvernig hann stendur í náminu. Meðal námsmatsþátta eru ýmiss konar verkefni (bæði einstaklings- og hópverkefni, munnleg verkefni og skrifleg), heimildaritgerð, hlustunarverkefni auk styttri prófa.