Í áfanganum er fjallað um sögu máls og menningar frá frumnorrænum tíma til okkar daga. Nemendur kynnast nokkrum atriðum í sögu íslensks máls frá öndverðu til nútíma, læra að lesa úr hljóðritunartáknum og kynnast helstu mállýskum á Íslandi. Nemendur kynnast norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna auk þess sem þeir fá tækifæri til að tjá sig í ræðu og riti um efni áfangans. Nemendur fá þjálfun í ritgerðarsmíð og ábyrgri meðferð heimilda. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslustundum.
Grunnskólapróf með hæfnieinkunnina B að lágmarki eða íslenskuáfangi á hæfniþrepi 1.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppruna og skyldleika indóevrópskra tungumála
helstu málbreytingum sem orðið hafa frá frumnorrænu til íslensks nútímamáls
meginatriðum íslenskrar málstefnu
uppruna ritlistar og þróun skriftar
áhrifum norrænnar tungu á önnur málsvæði
helstu mállýskum á Íslandi
breytingum á stíl íslensku frá upphafi ritunar til okkar daga
dæmum um uppruna og skyldleika orða
orðasmíð og merkingu
íslenskum nafnasiðum
mismunandi málsniðum og orðræðu við ólíkar aðstæður
helstu atriðum í heimsmynd norrænnar goðafræði
helstu goðum í norrænni goðafræði, hlutverki þeirra, vættum og öðrum átrúnaði
grundvallaratriðum í meðferð heimilda.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hljóðrita einföld orð
flytja fyrirlestur um kjörbók þar sem gætt er að framkomu og framsögn
skrifa heimildaritgerð á vönduðu máli þar sem gætt er að samhengi í efni og áhersla lögð á ábyrga og vandaða meðferð heimilda
nota handbækur og hjálparforrit um stafsetningu, meðferð heimilda og framsetningu texta.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla á gagnrýninn hátt um hin sögulegu tengsl tungumáls og menningar ...sem er metið með... verkefnum/fyrirlestri/ritgerð/prófi
rökræða um íslenska málstefnu ...sem er metið með... verkefnum/fyrirlestri/ritgerð/prófi
tjá sig munnlega með áherslu á notkun bókmenntafræðilegra hugtaka, skýra framsögn og örugga framkomu ...sem er metið með... fyrirlestri
skrifa vandaðan texta þar sem samhengis í efni er gætt og heimildir eru notaðar á ábyrgan hátt ...sem er metið með... heimildaritgerð
axla ábyrgð á eigin námi ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
taka virkan þátt í kennslustundum ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
tileinka sér jákvætt viðhorf til móðurmáls og eigin málnotkunar ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
beita lýðræðislegum vinnubrögðum í hópvinnu ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina
tjá skoðun sína á námsefni, námsmati og fyrirkomulagi kennslu ...sem er metið með... stöðugu mati kennara á framkomu og frammistöðu nemanda yfir önnina.
Gert er ráð fyrir leiðsagnarmati í áfanganum en það byggir á stöðugri endurgjöf kennarans um frammistöðu nemandans. Meðal námsmatsþátta verður: kjörbókarfyrirlestur, heimildaritgerð, ýmiss konar verkefni (bæði munnleg og skrifleg, einstaklings- og hópverkefni), skriflegt próf í lok annar og mat á undirbúningi og þátttöku nemandans í kennslustundum á önninni.