Áfanginn skiptist jafnt á milli umfjöllunar um stafræna mynd og hljóðútsetningar og mynd og hljóð upptöku þar sem lögð er áhersa á viðfangsefni tengd sköpun.
Kennd er uppbygging á mismunandi mynddreifikerfa, í lofti, yfir internet og IPTV.
Forsendur fyrir upplausn í dreifikerfi og hvernig upplausnarþörf er reiknuð og yfirfærð yfir í bandbreidd fyrir flutningsleiðir og flutningskerfi. Nemendur læri um þjöppun mynd- og hljóðmerkis og dreifingu þess með stafrænni mótun, hvort sem er um þráð eða í lofti.
Nemendur læra um grunnþætti stafrænnar mynd- og hljóðupptöku. Læra á hugbúnað til að vinna hljóð og mynd á stafrænan hátt.
NETV3RE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stafrænum dreifikerfum sjónvarps og útvarps
kröfum um bandbreidd fyrir útsendingu á hljóði og mynd
helstu þjöppunarstöðlum fyrir hljóð og mynd
hljóðupptöku og hljóðupptökubúnaði, hugbúnaðir og vélbúnaði
myndupptöku og myndupptökubúnaði, hugbúnaðir og vélbúnaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina þarfir og þekkja uppbygging á mismunandi mynd- og hljóðdreifikerfa
meta áhrif þjöppunar á merki og bandbreidd
nota hugbúnað og vélbúnað til að taka upp og vinna hljóð og mynd í stafrænu umhverfi
miðla hljóði og mynd yfir stafræna miðla og veitur.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
reikna upplausn og geymslustærðir fyrir stafrænar vinnslu og upptökur.
reikna þörf fyrir bandbreidd og þjöppunarstaðla í stafrænum útsendingum og upptökum á hljóði og mynd
taka upp, meðhöndla og miðla hljóði og mynd yfir stafræna miðla og veitur
nota fjölbreyttan búnað fyrir hljóð og myndupptöku
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.