DIN skinnu, eðlisfræði íhluta, hermiforrit, rafeindarásir
Samþykkt af skóla
3
5
CV
Nemendur þjálfast í öguðum vinnubrögðum og læra um mikilvægi vandaðrar vinnu og vandaðs frágangs. Nemendur fá þjálfun í smíði rafeindabúnaðar sem styður sveinsprófsáfangana FJSV og MEKV. Nemendur smíða rafeindatæki samkvæmt forskrift kennara sem síðar fer til mats hjá sveinsprófsnefnd.
SMÍV3RE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi vandaðrar hönnunar
þáttum sem spila inn í hönnun rása s.s. hitasveiflum, raka, iðustraumum, span og rýmdaráhrifum rása, utanaðkomandi truflunum, truflunum frá búnaði útávið.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vanda frágang rafeindarása með tilliti til hita, raka og utanaðkomandi truflana
meta þörf á hlífum í takt við IP staðal um raka og rykþol
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna og smíða rás og vélbúnað sem tekur við stýrimerkjum frá tölvu.
smíða fjarskiptabúnað til afmarkaðra nota með kassa og utanáliggjandi stillingum.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.