Áfanganum lýkur með sveinsprófi. Nemandinn fær tilsögn og þjálfun í skipulögðum vinnubrögðum við úrlausn stærri og flóknari verkefna. Nemandinn fær viðamikið verkefni sem er að skrifa forrit fyrir stjórntölvu sem stýrir búnaði í stærra samhengi. Til dæmis iðnaðarvélbúnaði svo sem vörulyftum, færiböndum og flokkurum eða öðrum búnaði sem ýmist vinnur sér eða er tengdur saman yfir samskiptabraut, þráðlaust eða yfir internetið. Þessi áfangi er unnin samhliða sveinsprófsáfanga í Mekatronik. Sveinsprófsverkefnið felur í sér til viðbótar við forritunina, smíði nauðsynlegs vélbúnaðar og gerð ýtarlegrar lýsingar á búnaðinum.
STTV3RE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forritun á framleiðslulínum
margskonar skynjurum og vélbúnaði
virkni vélarama og færibanda
interneti hlutanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
forrita framleiðslulínur
setja upp analog skynjara
segja upp Digital skynjara
tengja skynjara og drif við tölvu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
þróa vinnslulínu með völdum skynjurum og drifum
setja upp flóknari framleiðslulínur
forrita framleiðslulínur
þróa og setja upp sérhæfðan samsettan stýribúnað eftir kröfulýsingu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.