Í áfanganum er fjallað um hornaföll , hornafallareglur og vigurreikning og kafað dýpra í þessi atriði en gert er í undanfarandi áföngum.
STÆR2JV05(11)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
rétthyrndum og gleiðhyrndum þríhyrningum
þríhyrningareglunum
hornareglum
gröfum hornafalla
bogmáli horna
notkun vigra, skilgreiningum og reiknireglum
liðun og hnitum vigra
innfeldi
pólhnitum vigra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota hornaföll í lengdar- og flatarmálsútreikningum
nota hornaföll og gröf hornafalla við lausnir á tíðnibundnum fyrirbærum
lesa úr gröfum hornafalla
reikna með vigrum
reikna innfeldi vigra
reikna með vigrum á pólhnitsformi.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar og vinna á skipulegan hátt ...sem er metið með... verkefnum/prófum
útskýra hugmyndir sínar og verk ...sem er metið með... verkefnum/prófum
fylgja fyrirmælum sem gefin eru ...sem er metið með... verkefnum/prófum
lesa úr stærðfræðilegum upplýsingum ...sem er metið með... verkefnum/prófum
beita skipulegum aðferðum við lausn verkefna sem tengjast námsefninu ...sem er metið með... verkefnum/prófum.
Í áfanganum er gert ráð fyrir leiðsagnarmati sem byggir á því að nemandinn fái með reglulegum og skipulegum hætti upplýsingar um hvernig hann stendur í náminu. Námsmat byggist á verkefnum sem nemendur vinna í kennslustundum og utan þeirra, skriflegum prófum sem lögð eru fyrir nemendur, bæði kaflaprófum yfir önnina og yfirlitsprófi í lok hennar, auk virkni nemenda í kennslustundum.